Sýnishorn af nýrri vefsíðu fyrir Rafmenn ehf., unnið af Vefsíðu – vefsida.is
460-6000Senda verkbeiðni

Hvalfjarðargöng

7. maí 2026

Hvalfjarðargöng

Starfsmenn Rafmanna vinna nú hörðum höndum við útskiptingu ljósa í Hvalfjarðargöngum. Unnið er á nóttunni og eru göngin lokuð frá kl. 21:30 – 06:00 (sunnudagskvöld til föstudagsmorguns). Aðeins er leyfður neyðarakstur í gegnum göngin á þessum tíma.

Verkið felst í heildarendurnýjun á lýsingarbúnaði gangnanna. Allur eldri búnaður verður fjarlægður og nýr dimmanlegur búnaður settur upp í staðinn.

Unnið er í allt að sex metra hæð með notkun vinnulyfta sem taka verulegt pláss á akbrautum. Við niðurtöku er eldri búnaður fjarlægður jafnóðum, sem þýðir að efni getur fallið á akbraut áður en það er fjarlægt.

Starfsmenn leggja sig alla fram um að framkvæmdum ljúki eins fljótt og auðið er en verkið krefst mikillar þolinmæði og þrautseigju í erfiðum aðstæðum.

← Til baka á fréttalista

Er verk fram undan?

Sendu okkur verkbeiðni og við skoðum og metum verkið og gerum tilboð innan fárra daga, þér að kostnaðarlausu.

Senda verkbeiðniSími 460-6000