Kraftmikið þjónustufyrirtæki á Akureyri
Rafmenn ehf. var stofnað árið 1997 og hefur síðan þjónustað fjölbreyttan og kröfuharðan hóp viðskiptavina við allt sem viðkemur raflögnum og fjarskiptum.
Orka að norðan
Fyrirtækið stækkaði ört og fljótlega þurfti að bæta við starfsmönnum þar sem verkefnin voru næg. Eyjafjörður er stærsta markaðssvæðið en fyrirtækið starfar í hinum ýmsu verkefnum um land allt.
Rafmenn bjóða alhliða þjónustu í heimilis- og fyrirtækjalögnum, öryggis-, síma- og tölvulögnum, og þjónusta rafbúnað í hinum ýmsu tækjum og tólum fyrir fjölda fyrirtækja.
Starfsmennirnir okkar eru fyrirtækið og má segja að kraftur þeirra og vilji skíni í gegnum slagorð fyrirtækisins: „orka að norðan“.
Hittu starfsfólkið
Frá 1997
Meirihlutaeigandi og stofnandi er Jóhann Kristján Einarsson. Meðeigendur hans eru Eva Dögg Björgvinsdóttir, Ketill Þór Thorstensen, Björgvin Björgvinsson og Halldór Eiríksson.
Rafmenn stofnað
Jóhann Kristján Einarsson rafvirkjameistari stofnar fyrirtækið á Akureyri. Það stækkaði ört enda verkefnin næg.
10 ára starfsafmæli
Fastráðnir starfsmenn orðnir rétt um 40 og hefur fjöldinn staðið nokkuð í stað síðan. Við stærri framkvæmdir hafa starfsmenn farið í rétt rúmlega 50.
Eigið húsnæði
Starfsemin flytur í eigið húsnæði.
Héðinsfjarðargöng
Stærsta verk sem Rafmenn höfðu tekið sér fyrir hendur – fjórðu jarðgöngin sem Rafmenn og starfsmenn þeirra koma að.
Lofsvert lagnaverk
Viðurkenning fyrir lagnaverk við Menningarhúsið Hof.
D-vottun SI
Gæðavottun Samtaka iðnaðarins.
Framúrskarandi fyrirtæki
Viðurkenning Creditinfo.
Hvalfjarðargöng
Heildarendurnýjun á lýsingarbúnaði gangnanna.
Hlutverk og stefna
Tilgangur félagsins er hvers konar raflagnastarfsemi, með það að markmiði að gera viðskiptavini ánægða með góðri og skjótri þjónustu, vönduðum vinnubrögðum, sanngjörnu verði og snyrtimennsku.
Gæðamál
Hjá Rafmönnum er rekið sérstakt verkefnastjórnunarumhverfi samkvæmt PRINCE2-aðferðafræðinni. Gæðastjóri er yfirmaður verkefnastjórnunar, gerir skýrslur og heldur utan um verkefni. Fyrirtækið hlaut D-vottun Samtaka iðnaðarins árið 2013.
Þekking og þjálfun
Fyrirtækið leitast við að viðhalda þekkingu starfsmanna með námskeiðum, endurmenntun og þjálfun til frekari vaxtar og verðmætasköpunar sem gagnast jafnt starfsmanninum og fyrirtækinu.
Til fyrirmyndar
2025 – Framúrskarandi fyrirtæki
Að jafnaði standast aðeins um 2% fyrirtækja þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja.
2026 – Rafmenn til fyrirmyndar
Við erum stolt af nafnbótinni og öllu framúrskarandi starfsfólkinu sem sér til þess að við séum til fyrirmyndar.
2013 – D-vottun
Þann 28. febrúar 2013 hlaut fyrirtækið D-vottun Samtaka iðnaðarins, gæðavottunarferli sem SI stendur fyrir.
2012 – Lofsvert lagnaverk
Rafmenn hlutu viðurkenningu fyrir lofsvert lagnaverk við Menningarhúsið Hof árið 2012.
Að störfum


















Er verk fram undan?
Sendu okkur verkbeiðni og við skoðum og metum verkið og gerum tilboð innan fárra daga, þér að kostnaðarlausu.
