Til þjónustu reiðubúin
Það er okkur mikið kappsmál að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina okkar á hverjum tíma – í heimilis- og fyrirtækjalögnum, öryggiskerfum og síma- og tölvulögnum.

Almennar raflagnir
Hvort sem um er að ræða nýlagnir eða endurnýjun eldri lagna hefur grunnur Rafmanna alltaf verið húsaraflagnir.
Rafmenn sinna bæði hefðbundnum raflögnum og óhefðbundnari lögnum, eins og tölvustýrðum aðgangsstýri- og lýsingakerfum tengdum við fjarstýringar og hreyfiskynjara.
- Nýlagnir í nýbyggingum
- Endurnýjun raflagna í eldri byggingum
- Ljósastýringar og hreyfiskynjarar
- Uppsetning hleðslustöðva
- Rofar, tenglar og innfellingarefni

Viðgerðarþjónusta
Þjónustudeild sinnir bilanagreiningu og viðgerð á stórum sem smáum tækjum fyrir fyrirtæki og stofnanir á Akureyri og nágrenni, ásamt uppsetningu á hinum ýmsu tækjum og tólum.
Þjónustudeildin býður einnig upp á þjónustu og bilanaleit í heimilis- og fyrirtækjalögnum.
- Bilanaleit í heimilis- og fyrirtækjalögnum
- Viðgerðir á tækjum fyrir fyrirtæki og stofnanir
- Uppsetning tækja og búnaðar
- Þjónusta við rafbúnað í tækjum og tólum

Öryggiskerfi
Rafmenn hafa yfir að ráða þrautþjálfuðum starfsmönnum við uppsetningu á öryggiskerfum hjá heimilum og fyrirtækjum.
Við setjum upp innbrotakerfi, brunakerfi, staka neyðarlýsingarlampa eða samtengd neyðarlýsingakerfi, myndavéla- og aðgangsstýrikerfi.
- Innbrotakerfi
- Brunakerfi
- Neyðarlýsing, stakir lampar eða samtengd kerfi
- Myndavéla- og aðgangsstýrikerfi

Síma- og tölvulagnir
Við tökum að okkur uppsetningu á síma- og tölvulögnum sem uppfylla allar helstu gæða- og öryggiskröfur.
Hjá Rafmönnum starfa sérfræðingar á sviði smáspennulagna með áratuga reynslu og er öllum lögnum skilað með fullkomnum mælingaskýrslum.
- Síma- og tölvulagnir
- Smáspennulagnir
- Mælingaskýrslur fylgja öllum lögnum

Úttektir á brunakerfum
Þjónustudeild sinnir árlegum úttektum á brunaviðvörunarkerfum og neyðarlýsingu hjá fyrirtækjum og stofnunum, ásamt útskiptingu á slíkum búnaði sé þess þörf.
Fyrirtæki geta gert samning um viðhald og ársúttektir á brunaviðvörunarkerfum og neyðarlýsingu.
- Ársúttektir á brunaviðvörunarkerfum
- Úttektir á neyðarlýsingu
- Útskipting búnaðar
- Þjónustusamningar fyrir fyrirtæki

Fjarskiptalausnir
Við leggjum mikla áherslu á hraða og góða þjónustu og vinnum stöðugt að framförum í tækni og þjónustuleiðum.
Fyrirtækið sinnir öllum rafstöðvum fyrir Mílu, Neyðarlínuna, Sýn og RÚV um allt land.
- Rafstöðvar fyrir Mílu, Neyðarlínuna, Sýn og RÚV
- Atvikamyndavélakerfi í jarðgöngum
- Þjónusta um land allt
Tvær deildir
Verkefnadeild
Tekur að sér allar stærri framkvæmdir, s.s. raflagnir í nýbyggingum, veitinga- og skrifstofuhúsnæði, jarðgöngum og endurnýjun raflagna í eldri byggingum.
Senda verkbeiðniÞjónustudeild
Býður upp á þjónustu og bilanaleit í heimilis- og fyrirtækjalögnum, viðgerðir á tækjum fyrir fyrirtæki og stofnanir og árlegar úttektir á brunakerfum og neyðarlýsingu.
Hafa sambandEr verk fram undan?
Sendu okkur verkbeiðni og við skoðum og metum verkið og gerum tilboð innan fárra daga, þér að kostnaðarlausu.
