
Vinna stendur nú yfir við nýbyggingu hjúkrunarheimilis við Vestursíðu og erum við hjá Rafmönnum þar með allt rafmagn, öryggis- og brunakerfi.
Um er að ræða fimm íbúðakjarna og verða níu íbúðir í hverjum þeirra, ásamt borðsal, eldhúsi, setustofu, vinnurými, þvottahúsi og geymslum. Kjarnarnir eru tengdir saman með göngum og stór samkomusalur er á milli þeirra. Stærð hússins er áætluð um 3.375 m².



