
Rafmenn hafa verið við vinnu raflagna í leikskólanum Klöppum við Glerárskóla í vetur (2020–2021). Áætlað er að leikskólinn verði tekinn í notkun haustið 2021.
Þetta verður 7 deilda leikskóli á 2 hæðum, alls 1.450 fm að stærð, og gert ráð fyrir að hann taki við 144 nemendum. Leikskólinn er allur hinn glæsilegasti og verður kærkomin viðbót við þá leikskóla sem fyrir eru á Akureyri.



