
Rafmenn hafa nú hafið vinnu fyrir alvöru í Héðinsfjarðargöngum. Ýmsar orsakir hafa valdið því að verkið hefur tafist, t.d. var heill árfarvegur inni í göngunum um tíma sem tafði fyrir borun.
Verkið er það stærsta sem Rafmenn hafa tekið sér fyrir hendur. Til gamans má geta þess að Jóhann, eigandi Rafmanna, og Balli Ragnars, starfsmaður okkar, lögðu allt rafmagn í Ólafsfjarðargöng á sínum tíma. Balli var svo í Hvalfjarðargöngum, Rafmenn lögðu allt rafmagn í göngin um Almannaskarð og nú eru það Héðinsfjarðargöng – fjórðu jarðgöngin sem Rafmenn og starfsmenn okkar koma að.
Til merkis um umfang verksins má nefna helstu magntölur:



